Breadcrumbs
Heim / Hitt & þetta / Stærsti og sterkasti vaxtarræktarmaður í heimi.Stærsti og sterkasti vaxtarræktarmaður í heimi.
Greg Kovacs hefur skotið hratt upp á stjörnuhimininn í vaxtarræktarheiminum og eru ástæður þess einkum tvær.
Hann er þyngsti og sterkasti vaxtarræktarmaður sem sögur fara af. Líkamsþyngd Kovacs á uppbyggingartímanum er 400 pund eða sem samsvarar 180 kílógrömmum. Fyrir mót sker hann sig niður og keppnisþyngd hans er um 320 pund eða 140 kílógrömm. Til samanburðar þá er keppnisþyngd Dorian Yates(sem er margfaldur herra Olympia) um 120 kílógrömm eða 20 kílóum minna en Greg og hefur hann þó aldrei þótt neitt peð.
Þrátt fyrir að þessar tölur séu rosalegar þá eru þyngdirnar sem Kovacs lyftir hreint út sagt ógnvænlegar.
Hér koma nokkrar tölur.
Þrátt fyrir að þessar tölur séu rosalegar þá eru þyngdirnar sem Kovacs lyftir hreint út sagt ógnvænlegar.
Hér koma nokkrar tölur.
Eins og sjá má er hér enginn venjulegur maður á ferð.
Lítum aðeins á hvað þarf að borða til að knýja slíkar æfingar áfram.
Lítum aðeins á hvað þarf að borða til að knýja slíkar æfingar áfram.
|
Greg skiptir þessu niður á 6-8 máltíðir yfir daginn
og uppistaðan í fæðuvalinu er kjöt, túnfiskur, kjúklingur, hrísgrjón, kartöflur. Til að ná að innbyrða 600 grömm af próteini á dag þarf Kovacs að bæta við próteindrykkjum. Þess vegna drekkur hann til viðbótar 4 skammta af Mesotech.
Úr því fær hann 208 grömm af hreinu mysupróteini 96 grömm af kolvetnum og 40 grömm af glutamini. Einnig tekur hann 2 skammta af Cell-Tech á dag, einn skammt á morgnana og svo aftur strax eftir æfingu. Það gefur honum 20 grömm af kreatíni 150 grömm af kolvetnum og 600 míkrógrömm af Chromium picolinate.
Það er ástæða til að muna eftir nafni Greg Kovacs í framtíðinni.
Hann er aðeins sá fyrsti af vaxtarræktarmönnum 21. aldarinnar þar sem öll lögmál um styrk og vöðvastærð verða brotin.
|
|
![]() |

