Breadcrumbs
Heim / Greg Zulak svarar / Það besta sem til er?Það besta sem til er?
Spurning:
Sæll herra hype.
Ég hafði verið að nota venjulegt hreint kreatín en eftir að hafa lesið hvernig þú dásamaðir Cell-Tech þá ákvað ég að skipta yfir í það á miðju tímabili. Ég þyngdist vissulega, en bara um skitin 4 kíló á 7 dögum. Hvernig stendur á því? Þú lætur Cell-Tech hljóma eins og það sé það besta sem til er.
Svar:
Við skulum sjá hvort ég skil þig rétt.
Þú þyngdist aukalega um 4 kíló á meðan þú varst hlaðinn af öðru kreatíni bara með því að skipta yfir í Cell-Tech, og þú ert ekki ánægður. Þú ættir að vera í himnasælu með árangurinn. Taktu hausinn á þér út úr rassgatinu á þér, hættu að sniffa módellímið og reyndu að átta þig á árangrinum sem þú hefur náð!
Þyngdaraukning upp á 4 kíló á meðan þú ert hlaðinn upp af öðru kreatíni er frábær árangur. Ég vildi óska að ég gæti þetta. Bara það, að þú skyldir þyngjast svona mikið þó að þú hafir verið hlaðinn af öðru kreatíni staðfestir það sem ég hef alltaf sagt. Cell-Tech er besta kreatínið sem fáanlegt er í dag!! þú ert sönnunin en þú ert bara of heimskur til að sjá það.
Hvað ertu annars að fara fram á? gerir þú þér grein fyrir að þú þyngdist um rúmlega hálft kíló á dag á meðan þú notaðir Cell-Tech? margir þeirra sem lesa þetta kvörtunarbréf þitt myndu drepa fyrir að massast svona rosalega.
Þú minntist ekki á hvað þú þyngdist mikið á hinu kreatíninu en ég er sannfærður um að ef þú hefðir byrjað strax á Cell-Tech þá hefðir þú þyngst samtals meira.
Þegar atvinnumenn í vaxtarækt nota Cell-Tech á meðan þeir hvíla sig á sterku efnunum þá segir það allt sem segja þarf. Margir vaxtarræktarmenn nota Cell-Tech síðustu fimm dagana fyrir mót til að kolvetnahlaða með griðarlega góðum árangri.
Ég segi það einu sinni enn Cell-Tech er öflugasta kreatín formúlan á markaðnum í dag. Ef þú ert ekki að nota kreatín þá skaltu prófa Cell-Tech og ef þú ert á öðru kreatíni þá skaltu skipta yfir strax!! Þú sérð ekki eftir því.
Greg Zulak
Þýtt og endursagt úr Musclemag
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
